Sol De Ibiza sólarvörn fyrir börn 30SPF, 100 gr.

Sólarvörn sem kemur í veg fyrir sólbruna, roða, þurrk, yfirborðsroða (erythema) og róar ertingu. Ver jafnframt húðina gegn sólargeislum, vindi, mengun og bakteríum. Framleitt úr náttúrulegum efnum eins og aloe vera og morgunfrú (calendula) og er örugg fyrir börn frá 0 ára.

Vörunúmer: 10170288
+
4.649 kr
Vörulýsing

Barna- og krakkasólarvörnin frá Sol de Ibiza hefur margþætta virkni og er því tilvalin í hinu daglega amstri hvort sem þú ert í fríi eða ekki. Með hárri SPF 30 vörn hindrar það 97% af UVB geislum og veitir breiðvirka UVA vörn.

Og ekki nóg með að það veiti vörn gegn sólargeislum þá verndar það húðina gegn vindi, mengun og bakteríum og því er það einnig afar hentugt á bleyjusvæði barna.

Steinefnasólarvörnin frá Sol de Ibiza er hentug fyrir nýbura og uppúr. Á nýburum er húðin allt að fimm sinnum þynnri en á fullorðnum og því er þessi tilvalin á bleyjusvæði þar sem kremið róar og meðhöndlar roða, þurrk og ertingu á bleyjusvæðum barna.

Innihald

Kaprýl/kaprín þríglýseríð, Cocos nucifera olía (*), Sinkoxíð (20%), Kísil, Euphorbia cerifera cera, Pólýhýdroxýsterínsýra, Tókóferýl asetat, Aloe barbadensis laufsafi (*), Helianthus annuus fræolía (*), Prunus amygdalus dulcis olía, Calendula officinalis blómaþykkni (*), Oryzanol, Tocopherol, Ascorbyl Palmitate, Lesitín, Sítrónusýra.


(*) Hráefni sem koma frá lífrænni ræktun
Sol de Ibiza baby & kids er COSMOS lífrænt vottað

Tengdar vörur